Ash to ash, dust to dust, life is short so party we must....=)
24.08.2006 22:06:57 / lopi

Óvissuferð Lopapeysanna 2006!

Óvissuferð Lopapeysanna 2006!

Jæja kæru systur nú er loks komið að hinni margumtöluðu lopapeysuútilegu 2006!! Brottför verður frá ábæ stundvíslega kl. 10.03 á laugardagsmorgun og áætlaður heimkomutími er nákvæmlega á sunnudagseftirmiðdegi.. Það er áríðandi að allir mæti í tjillgallanum...alls ekki í dieselgallabuxunum eða uppáhalds skónum!! Við erum ekki að fara að taka þátt í neinni fegurðasamkeppni....allavega ekki fyrr en seinna um kvöldið! Mwuhahahahaha!!! J

En það er okkur sönn ánægja að kynna tossalistann sem segir hvað þið þurfið að hafa meðferðis:

*      Fimm aura brandara að eigin vali

*      Blenni já!

*      Lopapeysa og ullarsokkar

*      Blenni já!

*      Sundföt og handklæði (ekki gleyma sundgleraugunum)

*      Blenni já!

*      Snyrtidót að eigin vali en muna eftir bleika kinnalitnum!!!

*      Blenni já!

*      Nærbuxur sem ykkur þykir ekki vænt um

*      Blenni já!

*      Tjúttgallinn

*      Blenni já!

*      Hlý föt

*      Blenni já!

*      Pillan (þar sem við verðum er ekki rétta fólkið til undaneldis!)

*      Blenni já!

*      Visakort.....eða bara ávísunarheftið..þið gætuð þurft á vasapening að halda!

*      Blenni já!

*      Náttföt

*      Blenni já!

*      Munnharpa

*      Blenni já!

*      Uppáhalds vínilplötuna, kasettuna....eða bara geisladiskinn

*      GÓÐA SKAPIÐ!!!

Þessu skal pakkað í litla tösku því við þurfum gott pláss fyrir allt blennið já!

Sjáumst hressar og kátar! Kveðja nefndin! J


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 18:02:24 / lopi

Óvissuferð 2006

Sælar stúlkur.

Ákveðið hefur verið að hafa lopapeysuútileguna 2006 óvissuferð. Ég gjaldkerinn og Vala erum að plana rosa trip. Stefnan er tekin á að fara úr bænum á föstudaginn 25. águst og koma aftur sunnudaginn 27. ágúst. Restin er algjört TOP SECRET en þáttakendur munu fá afhendan nákvæman lista yfir allt sem þeir eiga að taka með sér. Ég held að allt stefni í að það séu 10-12 lopapeysur að fara að taka þátt í þessari miklu gleði og auðvita viljum við að þið ALLAR komið með. Því miður er þó aldrei hægt að fara þegar allir komast. En meira frá okkur síðar...

Kv. Gjaldkerinn.

P.s. þær sem ekki hafa verið duglegar að leggja inná lopapeysureikninginn verða að herða sig næstu daga...


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 11:52:53 / lopi

Það er ekki seinna vænna...

... en að fara að lífga þessa síðu eitthvað við!!

Nú er komið sumar.. sumarið er einmitt tími lopapeysanna.

Sumarið er nefnilega sá tími sem að við klæðum okkur í lopapeysurnar og skellum okkur í útilegu eða eitthvað slíkt! Ég er alveg orðin æst í að við förum að hittast og gera eitthvað sniðugt... og það STRAX!!

Mig langar til að gera hina árlegu lopapeysuútilegu að ÓVISSUFERÐ þetta árið. Haldið þið að það væri ekki snilld að halda af stað með svefnpokana okkar og lopapeysurnar útí óvissuna í blíðskapar veðri með bjór í hönd?? Ég fæ alveg fiðring í litlu tærnar þegar ég hugsa útí þetta.

Mig langar mikið til að skipuleggja svona ferð fyrir okkur... Við eigum orðið svolítið af peningum inná reikningnum okkar, reyndar misjafnlega mikið, en þær sem ekki hafa verið nógu duglegar að leggja inn geta bara borgað það upp núna og svo fer þessi peningur þá í að borga mat, tjaldstæði og fleira sem ég ætla ekki að segja vegna þess að þá er ekki mikil óvissa í ferðinni skiljiði!! :)

Ég er allavega orðin gríðarlega spennt fyrir þessu og vil endilega fá að heyra í ykkur dömur mínar... commentið nú og komið með hugmyndir!! Mig vantar líka svona eins og eina skvísu með mér í "óvissuferðarnefnd" er einhver sem býður sig fram??

Gjaldkerinn - vill fara að gera eitthvað af viti!! :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 15:07:58 / lopi

Péningar péningar....

Sælar stúlkur... það er gjaldkerinn sem talar.

Þær sem vilja að ég leggi lopapeysupening inná reikninganna þeirra verða að senda mér SMS með reikningsnr og kennitölu sinni....

Svo er líka alltaf spurning hvort við getum ekki bara eytt þessum peningum saman í eitthvað skemmtilegt! Látið mig vita hvað þið viljið gera!! :)

Lilja gjaldkeri - veit ekkert hvað hún á að gera við alla þessa peninga!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 00:51:31 / lopi

sumarið nálgast..

...jæja kindurnar mínar.. við erum ekki að standa okkur í bloggheiminum það eitt er víst.. en kannski við kippum því í lag.. þar sem við erum nú alveg rosa duglega í skemmtanalífinu ættum við nú að hafa eikkað að segja..;) held að maður fari að vinna í að setja inn myndir.. líst ykkur ekki alveg ágætlega á það?

en já ég er semsagt orðin rosa spennt fyrir sumrinu eins og flestir aðrir.. og ætla ég ásamt ykkur kæru lopar að skella mér til útlanda í sumar.. þar sem parentið mitt er að fara út til Londonar næstu helgi (17-19 feb)..þúst næstum því næstu helgi.. skiluru! en já þá langar mér að bjóða þeim lopum sem komast heim til mín annað hvort á föstud.kv eða laugard.kv, bara eftir því sem hentar betur:) til að ræða þessa blessuðu ferð.. því við verðum að fara að drífa okkur í að panta.. ég á eikkerja bæklinga sem hafa fyllt morgunblaðinu og þeir sem sjá sér fært að koma og vilja koma með til útlanda endilega koma með bæklinga og annað slíkt ef þeir eiga..

fyriráætluð fundarboð eru sem hér segir..

  • ávarp forseta(eigum við solleis?) og gjaldkera
  • áætlaður staður, hvaða land og framveigis..
  • hvaða viku(r) við viljum fara á.
  • Heitasta slúðrið
  • kannski eikkað nartað og drukkið(ráðið hvað það verður;))

en já endilega commentið ef þið viljið eikkað til málana leggja..:)

kveðja Þuríður lopi!


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 19:01:24 / lopi

jájájá...

Jú góðan og blessaðan daginn allar saman...

Ég ákvað nú að láta verða að því og blogga svolítið.

Nú er mál með vexti að ferðaskrifstofurnar eru farnar að útbíta bæklingum eins og brjálaðar og fólk farið að panta sér utanlandsferðir í sumar. Við verðum að fara að ákveða hvort við ætlum að láta verða að því að skella  okkur til spánar í sumar (eða eitthvað annað) og drífa í að panta. Flestar ferðaskrifstofurnar eru með 10.000 kr afslátt af 1000 fyrstu sætunum og er best að komast á svoleiðis díl!

Eruði ákveðnar hvort þið ætlið að fara út og hvert ætlið þið þá að fara???

Vinsamlegast kvittið hér að neðan og látið vita af ykkur... nú fer að færast alvara í málin!

Kveðja gjaldkerinn síkáti!! :)

P.s. einhverjir voru að tala um að fara frekar til eyja... er ekki bara bæði betra?? :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 23:24:09 / lopi

Stelpur?

Er ég sú eina? Er lopinn útrunninn? Neee...!!

Kellan er ein heima á föstudaginn!! Ég held að þetta sé allt spurning um svaðalegt fyllerí... of langt síðan við lopa sætu stúlkur hofum dottið ærlega í það saman!

Ooooog koma svo.... ;)

Nánari upplýsingar síðar

Rakel.


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 08:31:45 / lopi

Litlu andarungarnir....

..allir synda vel... Dagurinn er runnin upp. Lopapeysurnar verða sameinaðar á ný.. eða svona næstum...:whut: Sumir þurftu að vinna fyrir sneið (geira) hahaha.. náði einhver þessum brandara? stærðfræði 122 gott fólk! en já aðrir þurftu líka að vinna en já.. bleh.. upp kom sú staða að ég þarf að vera á leikæfingu til eitthvað að ganga hálf níu en hefur hún Matthildur verið svo væn að vilja taka á móti ykkur skessum! Annað sem hefur komið í ljós er að orðið breiddist hratt út, þ.e. að lopar yrðu ríjúnæted og kölluð var til hljómsveit A.K.A Spútnik, svo síðasti dagskráliður verður að hrista AF sér rassinn á barnum!! :lol:

Hlakka til að sjá ykkur hnoðrarnir mínir!!

Lopapeysa!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 10:14:47 / lopi

Lalala...

Elsku snúllu loparnir mínir...

Ég skrifa þetta bréf með það í huga að ég er í frí-i á föstudaginn n.k. Ég hef hugsað mér að boða ykkur til fundar. Fundarstaður verður að þessu sinni Skagfirðingabraut 25, efri hæð. Labbið beint inn og bankið á hurðina inni, dyrasiminn er bilaður! Nánari staðsetning er svo sjónvarpsholið góða en fundur hefst klukkan korter yfir átta. Fyrsta mál á dagskrá er Idol stjörnuleit.. Um klukkan korter yfir níu munum við færa okkur yfir í fínni stofuna, þá bláu, og fara yfir næstu mál á dagskrá, þ.e. ferð n.k sumar og svona það sem okkur lopum liggur á hjarta. Elsku dúllurnar mínar hafið það gott í komandi viku og sjáumst hressar á föstudaginn. Gleymdi ég nokkuð að segja að áfengi er leyft? og hafði ég hugsað að enda fundinn á barnum?? ;) Neee þarf ekkert að taka það fram....

Með kærri kveðju Rakel!

p.s. veit ekki hvað p.s-ið á að vera....held að það sé bara alltaf p.s í bréfum?


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.10.2005 13:12:08 / lopi

Halló halló

Hvernig er það er ekkert að gerast í þessu lopapeysufélagi okkar?? Ég hef ekki séð eina einustu krónu koma inná reikninginn síðan í sumar og einhvernveginn virðist öll umræða um spán vera að deyja út!! Hvað er þetta stelpur??? Við verðum náttúrulega að fara að gera eitthvað í þessu! Getum við ekki hisst um helgina og gert eitthvað skemmtilegt saman? Eitthvað annað en að borða nammi og drekka bjór kannski vegna þess að það er ekki það vinsælasta á markaðnum þessa dagana.. Nú er grænmeti í tísku... ég skal koma með blandað grænmeti... svona sirka 300gr í hverjum poka!! Hehe... einkahúmor! :) En allavega.. við skulum nú ekki fara að beila á þessu núna eða hvað? Ég þarf nú að reyna að bæta metið á næsta ári og fara 7 sinnum til útlanda.. eða það held ég!! :) Vildi bara koma smá peppi inn hérna... vonast til að fá einhver viðbrögð! Kv. Gjaldkerinn síkáti! :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2005 10:59:36 / lopi

Bene !!

Ég ætla syngja fyrir ykkur lag.

Það er einhvern veginn svona...

Mig langar til Bene, bene bene dorm... Því að þar er svo skemmtilegt, mikið um bjór. Ef þú vilt koma með til bene dorm... skaltu bara syngja bene bene bene dorm. Þessi texti er svo sungin við lagið ..Gleði, gleði" en það er sunnudagaskóla lag.. Ef þú kannt það ekki.. mættu þá í sunnudagaskólann n.k. sunnudag eða hafðu samband við Rakel og hún mun taka að sér kennslu !

Stelpur... Þetta þarf að fara ákveða!! Fundur a.s.a.p eða as soon as possible

Lopapeysa - rúllandi..rúllandi..rúllandi..rúllandi...rúllandi... rúlllandi.. rúllandi.. hey!


» 20 hafa sagt sína skoðun

10.09.2005 17:59:46 / lopi

Lopapeysufundurinn yfirstaðinn...

Jæja... loksins tókst að halda smá lopapeysufund í gærkvöldi. Lopapeysurnar fóru saman út að borða á Kaffi Krók... og fengu misjafnlega góðan mat!! En allavega.. þá mætti ég með myndir frá Portúgal og við veltum því svolítið fyrir okkur hvenær og hvert við ættum að fara.. niðurstaðan varð sú að ferðin mun verða farin síðustu vikuna í júní og fyrstu vikuna í júlí árið 2006... þá er bara spurning hvert skal haldið!! Það voru nú ekki alveg einróma hugmyndir um það og held ég að það endi með því að atkvæðagreiðsla verði haldin um þetta mál. Það verða allir að vera búnir að mynda sér skoðun á þessu máli fyrir næsta fund og þá verðum við bara að hafa atkvæðagreiðslu. Það er bannað að vera "alveg sama"! Allavega... ákvað ég að setja inn smá skoðanakönnun til að athuga hvar hugurinn liggur og endilega commentið ef þið hafið einhverja skoðun á þessu!!

Gjaldkerinn kveður að sinni og minnir um leið á sparnaðarreikning lopapeysanna nr. 0161-15-550060 :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 12:04:25 / lopi

Þegar hausta dregur verður að taka lopapeysurnar fram...

Jæja kæru lopapeysur.

Nú fer veturinn að ganga í garð og við þurfum alveg endilega að fara að hittast til að ganga frá prjónaskap sumarsins... jeje :)

En svona í alvörunni þá verðum við bara að fara að gera alvöru úr fundarhöldum, nammi og slúðri!! Er ekki einhver sem getur séð sér fært að bjóða okkur hinum heim til sín um helgina og halda pínu samkomu?? Við þurfum að ræða ýmis mál sem eru á takteinunum eins og t.d. sólarlandaferð og péningamál!! Heehe.. ég tala nottla ekki um annað en peninga þessa dagana þar sem ég hef troðið mér inn sem gjaldkera á eins mörgum stöðum og ég mögulega get! En allavega... látið nú heyra í ykkur einu sinni og athugum hvort við getum ekki kippt þessu í liðinn!!

Veriði sælar sætu lopapeysur...

Lilja gjaldkeri - vill fara að hitta stelpuskjáturnar!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 08:21:04 / lopi

Sælar stúlkur

Sælar veriði kæru lopapeysur nær og fjær.

Hvernig er það eiginlega, á ekki að fara að halda fund? Við höfum svo margt að ræða get ég sagt ykkur. Við þurfum að fara að skoða utanlandsferð næsta sumar. Ég á fullt af myndum frá Portúgal sem ég get komið með og svo vilja kannski einhverjar fleiri kynna okkur land sem þær hafa farið til. Svo má nú ekki gleyma að það verður nóg af kræsingum á borðum og kannski eitthvað af slúðri. Ég er allvega búin að vera að spara rosalegt slúður alveg heillengi núna til að segja á næsta fundi. Það er verst að ef fundurinn verður ekki fljótlega verðið þið pottþétt allar búnar að frétta það áður en ég næ að segja ykkur það... þessvegna vil ég leggja fram hugmynd um að hittast á laugardagskvöldið um næstu helgi, þ.e.a.s. 20 ágúst! Hvernig líst ykkur á það??? Endilega commentið nú og segið hvernig það henntar ykkur!!

Kveðja frá Gjaldkeranum!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2005 17:14:16 / lopi

Enginn fundur í kvöld!

Sælar skvísur... Droppa hér við til að láta ykkur vita að það verður ekki fundur í kvöld því miður... Ég fer svo á fötudaginn til Póllands og verður bara fundur á Skaffóbraut 25 þegar ég kem heim... Bið ykkur vel að lifa krúttin mín ;) Lopapeysan kveður í bili...

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3