Jæja... loksins tókst að halda smá lopapeysufund í gærkvöldi.
Lopapeysurnar fóru saman út að borða á Kaffi Krók... og fengu
misjafnlega góðan mat!! En allavega.. þá mætti ég með myndir frá
Portúgal og við veltum því svolítið fyrir okkur hvenær og hvert við
ættum að fara.. niðurstaðan varð sú að ferðin mun verða farin
síðustu vikuna í júní og fyrstu vikuna í júlí árið 2006... þá
er bara spurning hvert skal haldið!! Það voru nú ekki alveg einróma
hugmyndir um það og held ég að það endi með því að atkvæðagreiðsla
verði haldin um þetta mál. Það verða allir að vera búnir að mynda
sér skoðun á þessu máli fyrir næsta fund og þá verðum við bara að
hafa atkvæðagreiðslu. Það er bannað að vera "alveg sama"!
Allavega... ákvað ég að setja inn smá skoðanakönnun til að athuga
hvar hugurinn liggur og endilega commentið ef þið hafið einhverja
skoðun á þessu!!
Gjaldkerinn kveður að sinni og minnir um leið á
sparnaðarreikning lopapeysanna nr. 0161-15-550060 